Á það fyllilega skilið.

Maðurinn hefur þvílíkt tekið til í sínum málum og einnig tekið skrefið til fulls úr því að vera efnilegasti og dýrasti varnarmaður í heimi í að verða sá besti. Er 29 ára gamall en er samt búinn að vera viðloðandi A-landsliðið í 11 ár en það er líklegast bara David Beckham í núverandi hópi sem hefur verið viðloðandi það lengur en hann auðvitaði afsalaði sér tigninni árið 2006 og er á niðurleið á sínum ferli á meðan Ferdinand er tvímælalaust á toppnum. Svo vinnur það líka með honum að eftir úrslitaleikinn í Meistaradeildinni í vor þá var hann eini leikmaður úr þessum liðum United og Chelsea fór með landsliðinu strax á eftir í æfingaleikinn á móti Trínidad og Tóbagó þó svo að honum stóð það til boða að fá frí.

 Rio Ferdinand fyrirliði Englendinga. Hljómar vel.


mbl.is Ferdinand líklega fyrirliði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefði þetta verið mögulegur liðstyrkur?

Get ekki sagt það að mér fyndist það. Maður sem hefur ekki átt fast sæti í byrjunarliði liðs í næst efstu deild í Noregi ætti örugglega ekki mikið erindi í titilbaráttuna á Íslandi. Að mínu mati er mikið sniðugra fyrir FH-inga að gefa ungu strákunum séns enda nóg af þeim í Hafnarfirðinum. Í rauninni er allt of mikið af þeim sem daga uppi eða þurfa að hverfa á braut því þeir fá ekki tækifæri.

Annað er það í Keflavík þar sem ungum leikmönnum er gefið tækifæri ef það vantar menn í liðið. Enda sést það í dag að liðið sem laggði Þróttara að velli var skipað meira og minna uppöldum Keflvíkingum. 


mbl.is Haugasund hafnaði tilboði FH-inga í Kevin Nicol
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Greinilegt að þar þurfa að verða breytingar.

Greinilegt að þetta magnaða lið þjóðverja er komið á endastöð og að ekki veiti af endurnýjun. Nú er bara fyrir þá að byrja að byggja upp nýtt en það er alveg öruggt að nægur er efniviðurinn í Þýskalandi.

Djöfull var það sætt að strákarnir okkar unnu þá. 


mbl.is „Einfaldlega skandall að sitja eftir“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég ætla rétt að vona það.

Það væri nú ansi skrítið ef þeir gætu ekki lært neitt af mistökum undafarinna leikja gegn Pólverjum.

Er það von mín að boðið verði upp eitthvað annað varnarafbrigði í þessum leik til að reyna að koma þeim pólsku í opna skjöldu og fyndist mér alveg tilvalið að spila vel frammliggjandi aggresíva 3-2-1 vörn á móti þeim. Þar sem er farið grimmt út í skytturnar þeirra en það er helsta vopn þeirra. Koma svo strákarnir okkar! Þið getið allt ef þið eruð með hugann og hjartað á réttum stað.

 Áfram Ísland!


mbl.is „Þekkjum pólska liðið vel“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta verður athyglisvert.

Já það verður svo sannarlega athyglisvert að sjá hvernig hinum mikla leikara LF takist til að fylla í það stóra skarð sem Grissom (William Petersen) skilur eftir sig en hingað til hefur hann verið holdgervingur þáttana (og þá í rauninni allra CSI þáttana). Það verður vissulega mikill missir af Grissom.
mbl.is Laurence Fishburne leikur í CSI:Las Vegas
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það væri gaman að sjá Capello stilla upp þessu liði:

 Svona miðað við hópinn sem hann valdi.

 Markmaður: David James.

Hægri bakvörður: Wes Brown.

Vinstri bakvörður: Ashley Cole.

Miðvörður: Rio Ferdinand (C).

Miðvörður: John Terry.

Varnartengiliður: Gareth Barry.

Framliggjandi miðjumaður: Steven Gerrard

Framliggjandi miðjumaður: Frank Lampard.

Framliggjandi kantmaður (hægri): David Bentley.

Framliggjandi kantmaður (vinstri): Joe Cole.

Framherji: Wayne Rooney.

Þetta væri svona 4-5-1/4-3-3.


mbl.is Capello með fullskipaðan hóp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þessi maður er algjör snillingur.

Þegar hann gerir mynd þá verður maður að horfa því hann hefur hingað til bara verið með frábærar pælingar söguefni í sínum myndum. Algjör meistari í að finna útbrunnar stjörnur og blása þær aftur lífi.

 Bíð spenntur eftir þessari mynd.


mbl.is Fer Tarantino loks yfir strikið?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki beint óskamótherjinn!

Þeir pólsku hafa haft sæmilega gott tak á okkur ísmönnum hin síðari ár og veldur það áhyggjum að þurfa að mæta þeim. Það hefði verið ívið þægilegra að geta spilað við Spánverja eða Króata og þá frekar mætt Pólverjum þegar komið væri í undanúrslit og við gætum tapað leik en samt spilað upp á verðlaun. Það sem truflar okkur svo mikið er að þeir leika ekki með neinn leikstjórnanda inn á heldur eru þeir með 3 sleggjur fyrir utan sem eru allir yfir 2 metrana á hæðina og það gengur okkar varnarmönnum illa að eiga við og þá sérstaklega markmönnum okkar. Þetta þýðir að liðið má ekki gera nein mistök í sóknarleik sínum ef þeir ætla sér að sigra leikinn. En strákarnir okkar hafa áður gert hluti sem maður hélt að væru ómögulegir.

 Áfram Ísland!


mbl.is Íslendingar mæta Pólverjum í 8-liða úrslitum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvitað dreymir hann um það.


Hann reyndar hafnaði United árið 2006 en það var vegna þess að hann valdi Tottenham til að fá fast sæti í byrjunarliði og til ná að sanna sig í ensku úrvalsdeildinni. Nú er hann búinn að því og er því tilbúinn að taka næsta skref og það er til United. Einnig býr í sömu borg samlandi hans Martin Petrov sem leikur með Man City en þeir eru víst bestu mátar og stór ástæða fyrir því að Berbatov vill flytja sig um set. Sagan segir að Berbatov hafi bent Martin Jol þá verandi stjóra Tottenham á Petrov þegar hann var hjá At. Madrid og Jol hafi  hrifist og sagt Berba að hann myndi gera allt sem hann gæti til að kaupa hann yfir. En á endanum fór Martin Petrov til Man Shitty. Það fór víst illa í Berbatov.

 En Dimitar Berbatov verður boðinn hjartanlega velkominn ef af því verður að hann skipti yfir til rauðu djöflana. Þar verður hann kominn í félagskap manna sem þekkja fátt annað en sigur og að keppa í deild og Meistaradeild.


mbl.is Berbatov dreymir um að ganga til liðs við Manchester United
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Pétur Orri Gíslason
Pétur Orri Gíslason
Pétur er eldheitur stuðningsmaður Manchester United frá 5 ára aldri. Pétur er fæddur árið 1984 og hefur gaman af lífinu.

Færsluflokkar

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband