Færsluflokkur: Íþróttir

AS og Marca eru greinilega ómótstæðileg.

Eða svo virðist vera þar se þeir birta hvert "exsklúsif" viðtalið á fætur öðru við Ronaldo. Auðvitað er það kjaftæði því þessi dagblöð og þá sérstaklega Marca er á spenanum hjá Real Madrid og Real menn nota það óspart í áróðri til að lokka til sín leikmenn. Það eina sem vakir núna fyrir þessum spænsku pappírs-pésum er að gera okkur stuðningsmennina það óánægða út í hann að við heimtum að hann fari. En hvað mig snertir þá mun það ekki virka. Ég mun ekki snúa baki Ronaldo fyrr en að einn daginn komi hann fram í sjónvarpsviðtali og segist vilja fara til Real Madrid og aldrei aftur spila fyrir United.

Þannig vil ég hvetja fólk sem fylgist með þessu fíaskói sem þetta mál er að taka ekki neinu trúanlegu þar sem annað hvort AS eða Marca kemur fyrir í blaðagreinum eða öðrum fjölmiðlum. 


mbl.is „Til Madrid? Tölum saman að ári.“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jæja megum við þá fá Berbatov?

Ég bara spyr. Greinilegt að þetta Tottenham lið er að spjara sig mjög vel án hans og Darren Bent skorar mörkin eins og að drekka vatn.

 

Vona svo sannarlega að United kaupi Berbatov í vikunni. 


mbl.is 5:0 sigur Tottenham á Roma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tveir komnir. Aðeins 4 eftir.

Jæja þá eru mínir menn búnir að vinna tvo titla þetta tímabilið. En þeir hafa unnið vodacom bikarinn á mótinu í S-Afríku og Samfélagsskjöldin. Núna eru bara deildin, deildarbikar, FA bikarinn og Meistaradeildin eftir.

 

Það var rosalega gaman að sjá Gary Neville mættan aftur en það er samt augljóst að hann á töluvert í land með að ná fyrri getur. Var sérstaklega ryðgaður í sendingunum í fyrri hálfleik.

Tevez var magnaður og út um allan völl.

Fletcher var bara spilandi samba bolta og spurning hvort að Anderson hefur verið að skóla hann eitthvað til í bolta meðferðinni.

Fraizier Campbell kom inn á og var óheppinn að skora ekki þrátt fyrir frábæra takta og alveg greinilegt að hann getur orðið okkur góður leikmaður í framtíðinni.

O'Shea van alveg frábæra varnarvinnu inn á miðjunni.

En að lokum maður leiksins Ryan Giggs. Var alveg unun að horfa á hann í dag og greinilegt að hann er ekki búinn á því eins og margir vilja meina.

Eins og ég sagði einn titill kominn í hús og vonandi koma 4 í viðbót áður en tímabilið verður búið.

 

Glory glory Man Utd! 


mbl.is United vann Samfélagsskjöldinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ansans stútur.

Farðu að hætta þessu rugli Kiefer og koma aftur með 24. Forfallnir aðdáendur eins og ég þurfa skammtinn sinn. Ég er byrjaður í fráhvarfseinkennum.

Ég vill Jack Bauer aftur og það strax!


mbl.is Kiefer með nýja kærustu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Takk fyrir allt Meistari!

Þarna er hættur ein af æsku hetjunum. HM '94 sem var eign Romario mun seint renna manni úr minnum enn þá fór það ekkert á milli mála hver var kóngurinn á vellinum. Gríðarlega markamaskína sem varð annar leikmaðurinn í sögunni á eftir sjálfum Pelé til að skora fleiri enn 1000 mörk á sínum ferli.

Gangi þér allt tí haginn,
allan daginn.


mbl.is Romario hættur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gríðarlega góður Gattusso.

Er þessi maður á leið til Real Madrid? Það held ég ekki. Ef hann á ekki lengur erindi í AC Milan þá held ég að Real Madrid ættu nú ekkert að vera að púkka upp á hann. Þessi maður er augljóslega á niðurleið enda orðinn 30 ára og skiljanlega byrjað á hægjast á honum þessum gríðarlega vinnuþjarki og baráttuhundi.

Ef hann er á leiðinni frá Milan þá veðja ég á að hann fari til Bretlands. Konan hans er skosk enn henni kynntist hann einmitt þegar hann var hjá Glasgow Rangers á undan Salernitana og hefur hann gefið það út áður að honum langi að spila aftur með Rangers áður enn ferlinum líkur.


mbl.is Real Madrid á höttunum eftir Gattuso
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fimm ára samning fimmu Ferdinand fær og feykilegar fjárfúlgur.

Já þetta er glæsilegar fréttir að lesa. Besti varnarmaður heims að gulltryggja starfslokin sín. Margir töldu okkur United menn orðna bilaða árið 2002 þegar við keyptum hann á 30 milljónir punda. Hver hlær núna? Maðurinn búinn að vera nú þegar í 6 ár hjá félaginu og á alla vega 5 önnur eftir. 30 milljónir punda fyrir leikmann sem nýtist félagi í þetta langan tíma og framúrskarandi í sinni stöðu er auðvitað ekki neitt.
mbl.is Ferdinand mun skrifa undir nýjan fimm ára samning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skiljanlegt að maðurinn sé orðinn frústeraður.

Það hefur ekki staðið steinn yfir steini hjá honum síðan hann átti stór smellinn Ice Ice Baby sem flestir hlægja að í dag yfir hallærisheitum. Seldi lagið í 15 milljónum eintaka sem hefur gefið honum mikið í aðra hönd. En kannski hann sé orðinn varkárari núna eftir að hafa séð keppinaut sinn um Grammy verðlaunin 1991, MC Hammer, verða gjaldþrota en tónlistarleg saga þeirra er svipuð að mörgu leiti. Hér leyfi ég tónlistarmyndböndum með þeim köppum að fljóta með. Einhverjir komast í stuð á meðan aðrir brosa út í annað.

Vanilla Ice: Ice Ice Baby.


MC Hammer: U can't touch this.



Hvor hefur vinninginn?
mbl.is Vanillu-Ísinn lemur konu sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Pétur Orri Gíslason
Pétur Orri Gíslason
Pétur er eldheitur stuðningsmaður Manchester United frá 5 ára aldri. Pétur er fæddur árið 1984 og hefur gaman af lífinu.

Færsluflokkar

Feb. 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.2.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband